![Heiða Guðný og Steinunn í Bókasafninu á Selfossi Heiða Guðný og Steinunn í Bókasafninu á Selfossi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/04/heida_gudny2.jpg?fit=745%2C446&ssl=1)
![Heiða Guðný Ásgeirsdóttir.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/04/heida_gudny1.jpg?resize=600%2C900&ssl=1)
Í dag, Sumardaginn fyrsta, verður líf og fjör á Bókasafninu á Selfossi í tengslum við Vor í Árborg. Sigurður Jónsson opnar sýningu sína Vinnugleði í Listagjánni klukkan 12:00 og klukkan 13:00 mæta Steinunn Sigurðardóttir og Heiða Guðný Ásgeirsdóttir og segja frá tilurð bókarinnar um Heiðu: fjalldalabónda.
Starfsfólk Bókasafnsins á Selfossi hlakkar til að sjá sem flesta á Sumardaginn fyrsta með sól í hjarta.