Síðasta föstudag afhenti stjórn FOSS, Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi, Batasetri styrk að upphæð 150.000 krónur. FOSS hefur veitt styrki undanfarin ár til góðgerðamála í stað þess að senda jólakort til félagsmanna. Batasetur er félagasamtök einstaklinga með geðraskanir með bata og valdeflingu að leiðarljósi.
FOSS styrkti Batasetur
![foss_batasetur Frá vinstri: Lilja Hallgrímsdóttir, Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir Bataseturi, Birna Kjartansdóttir stjórnarmaður í FOSS og Halldóra Kristín Andrésdóttir.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/02/foss_batasetur.jpg?resize=1000%2C687&ssl=1)