![Starfshópur skipaður vegna viðbyggingar íþróttahúss í Þorlákshöfn Starfshópur skipaður vegna viðbyggingar íþróttahúss í Þorlákshöfn](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/02/itrottahus_torlakshofn.jpg?fit=600%2C410&ssl=1)
Á fundi bæjarráðs Ölfus sem haldinn var 9. febrúar sl. var samþykkt tillaga þess efnis að skipa starfshóp vegna undirbúnings viðbyggingar við íþróttahús í Þorlákshöfn. Starfshópinn skipa Jón Páll Kristófersson, formaður, Þrúður Sigurðardóttir, Hákon Hjartarson, Júlíana Ármannsdóttir og Ragnar Sigurðsson.
Gert er ráð fyrir því að vinnuhópurinn leggi fram þarfagreiningu vegna viðbyggingar og í framhaldi af henni hefjist hönnunarvinna. Hópurinn á að skila niðurstöðum fyrir 1. apríl nk.