Dregið hefur verið í fyrstu umferðum Borgunarbikars karla og kvenna í knattspyrnu og hefja karlarnir leik 21. apríl en konurnar 6. maí. Hjá körlunum eru leiknar tvær umferðir áður en að Pepsi-deildar félögin koma inn í 32-liða úrslit. Hjá konunum eru einnig tvær umferðir áður en Pepsi-deildar félögin koma til leiks í 16-liða úrslitum.
Leikir sunnlensku liðanna eru eftirfarandi:
Karlar 1. umferð:
Fös. 21. apr. 19:00 Árborg – KB JÁVERK-völlurinn
Lau. 22. apr. 14:00 Ægir – Ýmir Þorlákshafnarvöllur
Lau. 22. apr. 14:00 Gnúpverjar – KFR Árnesvöllur
Lau. 22. apr. 14:00 KFS – Hamar Týsvöllur
Sun. 23. apr. 14:00 Stokkseyri – Kría JÁVERK-völlurinn
Karlar 2. umferð:
Fös. 28. apr. 19:00 Selfoss – Elliði/KormákurHvöt JÁVERK-völlurinn
Lau. 29. apr. 14:00 Árborg/KB – KFS/Hamar
Lau. 29. apr. 14:00 Stokkseyri/Kría – Leiknir R
Lau. 29. apr. 14:00 Berserkir/Skallagrím – Gnúpverjar/KFR
Lau. 29. apr. 14:00 Álftanes/Vestri – Ægir/Ýmir
Konur 2. umferð:
Þri. 23. maí. 19:15 Selfoss – Augnablik/AftureldingFram JÁVERK-völlurinn