Apótekarinn opnaði í byrjun vikunnar nýtt glæsilegt apótek í verslunarkjarnanum Sunnumörk í Hveragerði en apótekið var áður til húsa í Breiðumörk 25.
„Með þessari breytingu höfum við aukið vöruúrvalið heilmikið og þjónustuna. Opnunartíminn er virka daga kl. 10–18. Við erum einnig að skoða möguleika varðandi helgaropnun, en það kemur í ljós á næstu vikum,“ segir Bogga Eggertsdóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá Lyfjum og heilsu hf. „Við fögnum þessum breytingum með glæsilegum opnunartilboðum og bjóðum Hvergerðinga og aðra Sunnlendinga hjartanlega velkomna til okkar í Sunnumörkina.“
Apótekarinn rekur einnig apótek í Kjarnanum á Selfossi, í Þorlákshöfn, á Hellu, á Hvolsvelli og í Vestmannaeyjum.