Lífland opnar í dag föstudaginn 3. febrúar nýja og glæsilega verslun að Ormsvelli 5 á Hvolsvelli, en sl. sumar tók Lífland við rekstri Búaðfanga á Stórólfsvelli.
Með nýju versluninni á Hvolsvelli eru verslanir Líflands orðnar fimm talsins. Þær eru í Reykjavík, í Borgarnesi, á Blönduósi og á Akureyri. Lífland rekur einnig hestavöruverslunina Top Reiter í Kópavogi.
Vöruúrval í verslunum Líflands er fjölbreytt fyrir hverskonar starfsemi tengda landbúnaði, hestaíþróttum, gæludýrum og þjónustu við matvælaiðnað.
Starfsfólk Líflands býður íbúum Rangárþings eystra í opnun nýju verslunarinnar í dag föstudag kl. 15.00–18.00.