![Kona sem fór í sjóinn við Reynisfjöru bjargaðist Kona sem fór í sjóinn við Reynisfjöru bjargaðist](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/2706_landsbj2.jpg?fit=410%2C200&ssl=1)
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út laust eftir klukkan 13 í dag vegna konu sem fór í sjóinn í Kirkjufjöru vestan Reynisfjöru. Björgunarsveitafólk kom á staðinn og Þór, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Vestmannaeyjum, hélt að Reynisfjöru ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Mikil alda var í fjörunni og erfitt um vik fyrir björgunarsveitafólk. Konan fannst fyrir skömmu vestast í Reynisfjöru, skammt frá þeim stað sem hún féll í sjóinn. Hún er nú á leið með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu er ekki hægt að greina frá líðan konunnar að svo stöddu.