![Útgáfuboð og kynning á Prjónafjöri 2 Útgáfuboð og kynning á Prjónafjöri 2](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/1512_prjonafjor1.jpg?fit=651%2C919&ssl=1)
Út er komin bókin Prjónafjör 2, en hún er svipuð fyrri bókinni með fjölbreyttar prjónauppskriftir fyrir alla fjölskylduna.
„Í bókinni eru peysur, húfur og vettlingar – þó engir sokkar þar sem ég prjóna helst ekki sokka. Ég er sjálf útgefandi, hönnuður og ljósmyndari. Vinn þetta allt heima þar sem þetta er áhugamálið mitt. Bókin fæst í helstu prjónabúðum á Suðurlandi,“ segir Anna Kristín Helgadóttir, Hvolsvelli.
Í dag fimmtudaginn 15. desember verður smá útgáfuboð eða kynning á bókinni á jólakvöldi í sveitabúðinni Unu á Hvolsvelli kl. 20–22 og eru allir velkomnir. Það verður boðið upp á söngatriði og einhver tilboð verða í gangi í búðinni.